13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Nyrsta sundlaug landsins
Sundlaugin í Grímsey hefur nú verið opnuð á ný eftir viðhald, þar sem laugin var m.a. máluð. Sundlaugin í Grímsey er nyrsta laug landsins, hún er innanhússundlaug eins og flestar þær laugar sem ekki hafa aðgang að jarðhitavatni, er segir í frétt á vef Akureyrarbæjar.
Enginn jarðhiti er í Grímsey og því er allt rafmagn framleitt í díselrafstöð, kælivatnið frá stöðinni er síðan notað til að hita upp sundlaugina. Laugin er opin þrjú kvöld í viku og á laugardögum. Í sundlauginni er einnig boðið upp á heitan pott. Þá er tjaldstæði Grímseyjar við sundlaugina.