Nýr verkefnisstjóri Glæðum Grímsey

Arna Björg Bjarnadóttir.
Arna Björg Bjarnadóttir.

Arna Björg Bjarnadóttir er nýráðinn verkefnisstjóri Glæðum Grímsey sem ákveðið hefur verið að framlengja til ársloka 2022. Hún tekur við af Karen Nótt Halldórsdóttur sem verður þó verkefninu áfram innan handar sem fulltrúi íbúa í verkefnisstjórn. Þetta kemur fram á vef SSNE. Arna er fædd og uppalin í Skagafirði, en hefur einnig sterka tengingu í Eyjafjörð og Norður-Þingeyjarsýslu þaðan sem hún á ættir að rekja.

Arna er þaulkunn frumkvöðlaumhverfinu og hefur átt frumkvæði að og komið að fjölmörgum smærri og stærri nýsköpunarverkefnum. Síðustu misseri hefur Arna verið sjálfstætt starfandi ráðgjafi og markþjálfi. Arna hefur búið bæði erlendis og í Reykjavík en hugurinn hefur þó alltaf sótt út á land og býr hún nú á Akureyri. Hún hefur ætíð haft mikinn áhuga á byggðaþróun og var m.a formaður samfélagsnefndar Fljótsdalshrepps sem unnið hefur eftir módeli Brothættra byggða.

Þora að hugsa öðruvísi og koma auga á tækifærin

Hún telur sóknarfæri landsbyggðanna og eyjanna í kringum Ísland mikil. „Þetta eru svæði sem eru einstök á heimsmælikvarða. Við þurfum einfaldlega að þora að hugsa öðruvísi, koma auga á tækifærin og skora það sem einhverjum kann að þykja ómögulegt á hólm. Við megum síðan ekki gleyma að láta heiminn vita af okkur,“ segir Arna, sem hóf nýlega störf og verður með starfsstöð á skrifstofu SSNE á Akureyri, auk reglulegrar viðveru í Grímsey.

Nýjast