Nýr samningur um samstarf

Karl Jónsson formaður UMF Samherja og Jón Stefánsson oddviti í Eyjafjarðarsveit handsala samninginn.…
Karl Jónsson formaður UMF Samherja og Jón Stefánsson oddviti í Eyjafjarðarsveit handsala samninginn. Mynd af vefsíðu Eyjafjarðarsveitar.
mth@vikubladid.is

Nýr samstarfssamningur milli Eyjafjarðarsveitar og Ungmennafélagsins Samherja hefur verið undirritaður, en hann fjallar um samskipti samningsaðila, notkun íþróttamannvirkja, styrkveitingar sveitarfélagsins og önnur sameiginleg hagsmunamál.

Markmið samningsins er að tryggja áframhaldandi öflugt íþrótta- og æskulýðsstarf ungmennafélagsins. Félagið heitir því að hvetja börn og unglinga til þátttöku í íþrótta- og æskulýðsstarfi og veita þeim greiðan aðgang að félaginu og því starfi sem á hverjum tíma fer fram á vegum þess.

Sveitarfélagið leggur samkvæmt samningnum til aðstöðu í íþróttamiðstöð, sundlaug og öðrum íþróttamannvirkjum á svæðinu og fær Samherji gjaldfrjálsan aðgang að ákveðnum tímafjölda fyrir sína starfsemi. Að auki fær félagið eina milljón króna ár hvert í rekstrarstyrk.

Með þessum nýja samningi vonast ungmennafélagið til þess að verða minna háð en áður velgengni Handverkshátíðar, en sú hátíð hefur fallið niður tvö ár í röð með umtalsverðum afleiðingum á fjárhag félagsins.

Nýjast