20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Ný netmiðja Mílu fyrir Ísland byggð upp á Akureyri
Fjarskiptafyrirtækin Míla og Farice hafa skrifað undir samning um afhendingu á útlandssambandi Farice til Mílu á Akureyri. Í kjölfar samningsins mun Míla hefja uppbyggingu nýrrar fjarskiptamiðju fyrir netumferð til og frá Íslandi á Akureyri og Farice mun bæta Akureyri við sem nýjum afhendingarstað útlandaþjónustu.
Hingað til hafa tengistaðir netumferðar til og frá landinu einungis verið staðsettir á suðvesturhorni landsins. Öll netumferð til útlanda hvaðan sem er af landinu hefur þurft að eiga viðkomu þar á leið sinni á áfangastað. Allir netnotendur á landinu, til að mynda á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum, þurfa fyrst að tengjast til Reykjavíkur jafnvel þó til staðar sé sæstrengur nær notanda.
Eykur öryggi íslenskra fjarskipta
Ný netmiðja Mílu og afhendingarstaður Farice á Akureyri breytir þessu. Flæði netumferðar verður skilvirkara og samskiptaleiðir styttri. Notendur nettenginga á norður helmingi landsins verða með beina tengingu við sæstrengi til útlanda og þurfa ekki lengur að sækja allt suður eins og áður. Með nýrri netmiðju á Akureyri eykst öryggi íslenskra fjarskipta þar sem samskipti til og frá landinu eiga kost á annarri leið en gegnum suðvesturhornið. Þær jarðhræringa sem eiga sér nú stað á Reykjanesskaganum og í nágrenni hans eru áminning um mikilvægi þess að styrkja stoðir mikilvægra innviða svo sem netmiðjur.
Góð áhrif á atvinnulífið
Vonir standa til að uppbygging netmiðju á Akureyri muni hafa mikil og góð áhrif á atvinnulífið á Norðurlandi. Hún styttir leið fjarskipta út í heim fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir. Það mun gera Akureyri og Norðurland að jafn ákjósanlegri staðsetningu og suðvesturland fyrir fyrirtæki og stofnanir sem krefjast beins aðgengis að alþjóðlegum samskiptaleiðum. Þetta er sérstaklega mikilvægt í uppbyggingu og rekstri gagnavera.