Norðurþing hækkar laun í Vinnuskólanum
Laun ungmenna í Vinnuskóla Norðurþings hækka um 9% á milli ára í takt við almennar launahækkanir starfsmanna sveitarfélaga sem starfa eftir launatöflu Starfsgreinasambandsins og Sambands Íslenskra sveitarfélaga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Framsýn stéttarfélagi sem óskað hafði eftir þessum upplýsingum.
„Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum samþykkti Reykjavíkurborg að hækka ekki laun ungmenna í Vinnuskóla Reykjavíkur milli ára sem er með miklum ólíkindum og rúmlega það. Reyndar til mikillar skammar fyrir sitjandi borgarstjórn,“ segir meðal annars í tilkynningunni.
Þá kallar stéttarfélagið eftir því að samanburður verði gerður á launakjörum ungmenna í vinnuskólum landsins. „Framsýn hefur komið þeim skilaboðum á framfæri við Norðurþing að mikilvægt sé að gera samanburð á launakjörum ungmenna í Vinnuskólum á landinu með það að markmiði að Norðurþing verði örugglega samanburðarhæft við önnur sambærileg sveitarfélög hvað varðar launakjör ungmenna í Vinnuskólum. Þeirri málaleitan hefur verið vel tekið af hálfu sveitarfélagsins.“