Norðursigling hefur hvalaskoðun frá Ólafsfirði
Þannig eru farnar þriggja tíma ferðir á íslenskum eikarbátum sem lokið hafa hlutverki sínu sem fiskibátar en hafa nú verið ríkulega útbúnir til farþegaflutninga. Með tilkomu Héðinsfjarðarganga hefur orðið slík bylting á samgöngum að Fjallabyggð þykir henta einkar vel til verkefnisins. Uppbygging á sviði strandmenningar á Siglufirði þykir einnig styðja við ferðir sem þessar og er þar sérstaklega til tekið hið stórglæsilega Síldarminjasafn sem og uppbygging Rauðku e.h.f. á veitingahúsum við smábátahöfnina.
Ólafsfjörður liggur vel við hvalaslóð á utanverðum Eyjafirði. Ferðaþjónusta þar í bæ er í mikilli sókn og horft er til þess að gisting og þjónusta sé í boði fyrir ferðamenn sem leggja leið sína í hvalaskoðun. Hótel Brimnes fer þar fremst í flokki en eigendur þess hafa unnið brautryðjendastarf á sviði ferðaþjónustu undanfarin ár. Í kynningu Norðursiglingar á þessari nýju þjónustu verður lögð áhersla á sérstöðu svæðisins og þá starfsemi sem þar er að finna líkt og félagið hefur gert í kynningarefni sínu vegna starfsemi í Þingeyjarsýslum. Gert er ráð fyrir að siglingar hefjist í byrjun júní.