Níu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í NA-kjördæmi
Níu frambjóðendur taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi sem fram fer laugardaginn 29. maí nk. Þrjár konur og sex karlar eru í framboði.
Frambjóðendur eru Berglind Harpa Svavarsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður byggðaráðs, Egilsstöðum, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, lögfræðingur og varabæjarfulltrúi, Akureyri, Einar Freyr Guðmundsson, menntaskólanemi, Egilsstöðum, Gauti Jóhannesson, forseti sveitarstjórnar, Djúpavogi, Gunnar Hnefill Örlygsson, framkvæmdamaður og fjármálaverkfræðinemi, Húsavík, Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir, nemi, Ólafsfirði, Ketill Sigurður Jóelsson, verkefnastjóri, Akureyri, Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður, Akureyri, Ragnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi, Reyðarfirði.