27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Niceair styrkir sig
“Það er sannarlega ánægjulegt að hafa fengið Helga til liðs við okkur í þetta stóra og metnaðarfulla verkefni sem við stöndum frammi fyrir. Helgi býr yfir gríðarlegri reynslu af uppbyggingu sölu- og markaðsstarfs, vörumerkjastjórnun og stofnun fyrirtækja í ferðaþjónustu. Sú reynsla mun vafalaust nýtast okkur vel í kynningu og uppbyggingu á vörumerkinu og öllum þeim verkefnum sem við okkur blasa við stofnun félagsins.“ segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Niceair.
Niceair er nýtt flugfélag sem hefur sig til flugs frá Akureyri og flýgur beint til Kaupmannahafnar, London og Tenerife fyrst um sinn. Félagið hóf sölu á flugmiðum í gær og hafa viðtökur verið vonum framar. Nýju flugleiðirnar koma til með að opna margvíslega möguleika bæði fyrir íbúa Norður- og Austurlands og erlenda ferðamenn og fela þær ekki síður í sér fjölmörg tækifæri fyrir ferðaþjónustuaðila á svæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Beint flug til Akureyrar gerir ferðaþjónustufyrirtækjum kleift að bjóða viðskiptavinum sínum nýja þjónustu, til að mynda styttri og ódýrari pakkaferðir um Norður- og Austurland, ferðir sem leggja áherslu á sérstöðu náttúru og menningar á svæðinu og ferðir með áherslu á minna troðnar slóðir og íslenskar náttúruperlur sem heimurinn á enn eftir að uppgötva.
"Niceair er vel fjármagnað félag með öfluga bakhjarla. Breiðsíða fyrirtækja, einstaklinga og stofnana á Norðurlandi hefur flykkt sér að baki félaginu, en KEA, Höldur, Kaldbakur, Norlandair, Armar, Ferðaskrifstofa Akureyrar, Norðurböð, brugghúsið Kaldi, Kælismiðjan Frost og fleiri félög eru meðal hluthafa. Enginn hluthafa er áberandi stór og enginn er yfir 6,5%" segir í tilkynningunni.