27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Akureyrarflugvöllur verður nú bókanlegur með beinu flugi utan úr heimi í fyrsta sinn
Flug Niceair til þriggja áfangastaða í Evrópu eru nú bókanleg í gegnum vefsíðu Dohop, vinsælustu flugleitarvélar á Íslandi. Í fyrstu verða bein flug Niceair aðgengileg á vefnum en í framtíðinni einnig tengiflug til fleiri áfangastaða í gegnum Dohop Connect, tengiþjónustu Dohop. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Tilkynnt var um tilkomu Niceair 17. febrúar s.l. en það mun einbeita sér að því að fljúga erlendum ferðamönnum frá Bretlandi og Danmörku til Akureyrar og þjónusta jafnframt heimamarkaðinn með vikulegu flugi til Tenerife.
“Það er mikil bylting fyrir heimamarkaðinn að geta bókað sig til hundruð áfangastaða erlendis í gegnum tengivelli félagsins í Stansted og Kastrup, auk þess sem Akureyrarflugvöllur verður nú bókanlegur með beinu flugi utan úr heimi í fyrsta sinn. Akureyri er nýr áfangastaður í áætlunarflugi á Íslandi og því spennandi kostur fyrir ferðamenn, ekki síst endurkomufarþega, sem hafa heimsótt höfuðborgarsvæðið og Suðurlandið í fyrri heimsóknum, en vilja nú upplifa meira.
Við væntum mikils af því að útvíkka þennan möguleika enn frekar í samstarfi við Dohop og þeirra samstarfsaðila meðal erlendra flugfélaga, þannig að bókunar-og leitarferli fyrir okkar farþega verði enn einfaldara” segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Niceair.
Dohop hefur þróað hugbúnað og tengimöguleika fyrir flugfélög og ferðaþjónustu í 18 ár. Nýjasta afurð félagsins er Dohop Connect sem býður flugfélögum upp á að selja tengiflug með fjölmörgum flugfélögum til hundruð áfangastaða um allan heim.
“Það er ánægjulegt að nýjasta flugfélagið skuli velja okkur til að þróa með sér lausnir fyrir sína farþega sem ferðast um Akureyrarflugvöll. Tengimöguleikar út frá Akureyri eru fjölmargir og verða með lausn Dohop enn aðgengilegri fyrir heimamarkaðinn. Dohop Connect lausnin er hentug fyrir lítil félög eins og Niceair, en með aðild að því útvíkkar félagið leiðakerfi sitt á einfaldan hátt," segir Davíð Gunnarsson, framkvæmdastjóri Dohop.