Nemendur safna áheitum fyrir Aflið

Á þriðjudag hófst góðgerðarvika í Menntaskólanum á Akureyri. Að því tilefni safna nemendur áheitum til styrktar góðu málefni. Að þessu sinni völdu menntskælingar að styrkja Aflið – Samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi. Það gæti vart átt betur við þar sem nú er nýlokið jafnréttisviku skólans. 

Á á fjasbókarsíðu Hugins, nemendafélags MA má fylgjast með hvaða gjörninga nemendur ætla að framkvæma í þágu söfnunarinnar. Þar segir enn fremur að nemendur muni fá valgreiðslur í heimabankann sinn uppá einungis litlar 1.290 kr. „Öll fá þá tækifæri til að styrkja þetta frábæra og góða málefni, en í ár ætlum við að styrkja Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi. Svo geta mamma og pabbi, amma og afi og frændi og frænka tekið þátt í söfnuninni með því að leggja inná Huginn,“ segir á síðunni.

Þá er bent á að hægt sé að leggja meira inn á reikninginn eftir að hafa greitt valgreiðsluna. „Þetta er stórt og mikið verk en við höfum fulla trú á öllum menntskælingunum, enda getum við ekki beðið eftir að sjá Halldóru fá sér “Jón Már” tattú og Málfó busla í Kvosinni,“ segir á síðunni og er vísað til tveggja áheitagjörninga sem þegar er búið að skipuleggja.

Tekið er við fjárframlögum á bankareikningi Hugins:

Rn. 0162-15-382074
Kt. 470997-2229

 

 

 

Nýjast