Nær 90% telja mikilvægt að Reykjavíkurflugvöllur sé á sama stað
Langflestir eru mjög eða frekar sammála því að Reykjavíkurflugvöllur sé nauðsynlegur til að halda tengslum við höfuðborgina. Þetta kom fram í netkönnun sem Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri framkvæmdi fyrir Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra.
Fram kom að 89% svarenda í könnuninni eru frekar eða mjög sammála þeirri staðhæfingu að mikilvægt sé að hafa Reykjavíkurflugvöll þar sem hann er staðsettur nú.Athyglisvert er að 80% svarenda 65 ára og eldri sögðust mjög sammála þessu en einungis 57% svarenda á aldrinum 20-45 ára.
Í takt við þetta sögðust 88% mjög eða frekar ósammála staðhæfingunni: Mér hugnast vel að miðstöð innanlandsflugs flytjist til Keflavíkurflugvallar. Einnig sögðu 88% þátttakenda frekar eða mjög sammála því að mikilvægt væri að efla þjónustu í landshlutanum ef flugvöllurinn í Reykjavík leggst af. Þá sögðust 65% frekar eða mjög sammála því að samgöngur um landleiðina verði mikilvægari í framtíðinni.
Búsetuskilyrði batna með millilandaflugi
Fram kom í könnuninni að um fjórðungur svarenda (26%) höfðu nýtt sér nýhafið millilandaflug frá Akureyrarflugvelli, en 77% höfðu áform um að nýta sér það á næstu 6 mánuðum. 86% svarenda sögðust frekar eða mjög sammála því að búsetuskilyrði sín batni við að fá reglulegt millilandaflug frá Akureyrarflugvelli. Svarendur búsettir á Akureyri og nágrenni Akureyrar voru einkum mjög sammála þessari staðhæfingu eða ríflega 70% svarenda samanborið við 43% á Húsavík.