Maturinn, jörðin og við

Ráðstefnan fer fram í Hofi á Akureyrir. Mynd/Auðunn Níelsson
Ráðstefnan fer fram í Hofi á Akureyrir. Mynd/Auðunn Níelsson

Félagið Auður Norðursins í samstarfi við Byggðastofnun, og með stuðningi fleiri aðila, efna til ráðstefnu um áskoranir og tækifæri í matvælaframleiðslu, í nútíð og framtíð.

Eins og fram kemur í markmiði ráðstefnunnar verður fjallað um innlenda matvælaframleiðslu frá mörgum sjónarhornum. Efni ráðstefnunnar ætti því að höfða til margra, sér í lagi þeirra sem tengjast matvælaframleiðslu með einum eða öðrum hætti og þeirra sem móta stefnu á því sviði. Einnig til þeirra sem horfa til umhverfis- og loftslagsmála, almennrar samfélagsþróunar og byggða- og atvinnuþróunar um land allt. Þess er vænst að með ráðstefnunni skapist góð yfirsýn með upplýsingum og umræðu um þetta mikilvæga samspil sem getur skipt sköpum til framtíðar.

Dagskrá ráðstefnunnar er að finna hér.

 

Nýjast