Malbikaðir stígar í gegnum allan bæinn

Nýi stígurinn meðfram Hörgárbraut. Mynd/Akureyri.is
Nýi stígurinn meðfram Hörgárbraut. Mynd/Akureyri.is

Búið er að malbika nýjan göngustíg meðfram Hörgárbraut á Akureyri sem markar þau tímamót að nú er hægt að komast á malbikuðum stígum í gegnum allan bæinn, frá Krossanesborgum og suður að bæjarmörkum við flugvöllinn. Greint er frá þessu á vef Akureyrarbæjar. Síðar í sumar verður malbikaður stofnstígur í Sjafnargötu og þar með verður komin ný leið sem tengir sveitarfélögin Hörgársveit og Eyjafjarðarsveit með stígum í gegnum Akureyri.

 

Nýjast