Má búast við hávaða við framkvæmdir við nýja Holtahverfið

Frá fyrstu skóflustungu að nýju Holtahverfi. Mynd/akureyri.is
Frá fyrstu skóflustungu að nýju Holtahverfi. Mynd/akureyri.is

Framkvæmdir standa yfir við gatna- og lagnagerð í Holtahverfi norður. Unnið hefur verið að uppgreftri í Þursa- og Hulduholti og er stefnt að því að ljúka uppgreftrinum í vikulok. 

Í framhaldinu hefst vinna við losun klappar. Klöppin verður fleyguð og við það skapast nokkur hávaði. Verkið verður unnið á virkum dögum, af og til í febrúar, á milli kl. 8 og 18. 

á vef Akureyrarbæjar er beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdin mun valda. 

Fyrsta skóflustunga að nýju íbúðahverfi var tekin í byrjun janúar en í heild er gert ráð fyrir um 300 íbúðum á svæðinu. Sjá HÉR

Nýjast