Lögreglan leitar vitna vegna líkamsárásar á Bíldadögum

Lögreglan á Norðurlandi eystra óskar eftir upplýsingum frá vitnum af líkamsárás er átti sér stað í kringum miðnætti að kvöldi laugardagsins þann 19. júní síðastliðins á tjaldsvæði Bílaklúbbs Akureyrar, en nálægt brotavettvangi stóð svört rúta. Þetta kemur fram á Facebooksíðu lögreglunnar.
 
"Öll vitneskja um málið er vel þegin og er óskað eftir því að þeir sem eitthvað um málið vita hafi samband sem fyrst í síma 4442800, þar sem upplýsingar verða teknar niður," segir lögreglan.

Nýjast