Leitað að manni með sixpensara
10. nóvember, 2021 - 12:55
Egill Páll Egilsson - egillpall@vikubladid.is
Lögreglan á Akureyri hefur óskað eftir upplýsingum um mögulegt vitni. Um er að ræða karlmann sem klæddur var í jakka og sixpensara og var á ferð um miðbæ Akureyrar, göngugötunni aðfaranótt sunnudagsins 31, október sl. um kl 02:35.
Lögreglan biðlar til fólks sem kann að vita hver maðurinn er að hafa samband með því að skilja eftir skilaboð á messenger lögregglunnar eða koma við á lögreglustöðinni
Nýjast
-
Dagur íslenskrar tungu í Nonnahúsi
- 15.11
Barnabókarithöfundurinn Jón Sveinsson, Nonni, fæddist 16. nóvember 1857. Af þessu tilefni er boðið til afmælis á æskuheimili hans, Nonnahúsi, á afmælisdaginn milli 12 og 14. -
Fyrirséð að álag á fráveituna verður mikið
- 15.11
Talsverður viðbúnaður er á Akureyri vegna veðurs sem nú gengur yfir svæðið. Líkur eru á að svipað ástand geti skapast og í september 2022 þegar sjór gekk á land á Eyrinni með umtalsverðum afleiðingum. Margt er líkt með veðrinu sem spáð er í kvöld og þeim aðstæðum sem þá sköpuðust. -
Úrslit í ritlistakeppni Ungskálda 2024
- 15.11
Dómnefnd mun kunngera úrslit í ritlistasamkeppni Ungskálda 2024 við hátíðlega athöfn í Amtsbókasafninu á Akureyri. Athöfnin fer fram á degi íslenskrar tungu, laugardaginn 16. nóvember kl. 14. Léttar veitingar verða í boði að athöfn lokinni og einnig verður tónlistarflutningur frá Elíasi Dýrfjörð sem leikur á kontrabassa. Öll velkomin á athöfnina. -
Þrír konungar frá Skarðaborg
- 15.11
Haustið er að baki og vetur konungur hefur tekið völdin amk. fyrst um sinn Sauðfé hefur haft það gott á beitinni, enda fyrri hluti nóvember óvenju hlýr. Hrútar fara á gjöf í vikunni á flestum bæjum og sumir bændur eru farnir að rýja féð inn. Þessir „konungar“ í Skarðaborg í Reykjahverfi eru vel ullaðir og þó næði kuldaél þá verður þeim ekki kalt í sinni kápu. Vonandi verður veturinn mildur, en bæði bændur og búalið þurfa á því að halda eftir kalt og rigningasamt sumar. -
Um 200 manns kynntu sér starfsemi Pharmarctia á Grenivík
- 15.11
Um 200 manns komu við á opnu húsi hjá fyrirtækinu Pharmarctia á Grenivík um liðna helgi. Þá var formlega tekið í notkun 1500 fermetra viðbótarhúsnæði sem gestum og gangandi bauðst að skoða jafnframt því að kynna sér starfsemi félagins. -
Bókarkynning - Ókei
- 15.11
Út er komin bókin ÓKEI — uppruni og saga þekktasta orðatiltækis í heimi. Höfundur er Sigurður Ægisson og Hólar gefa út. OK eða O.K., ýmist ritað með lág- eða hástöfum, er sagt vera þekktasta útflutningsafurð Bandaríkjanna, fyrr og síðar. Alla vega er þessi stafasamsetning fyrir löngu komin um gjörvalla Jörð og mun í ofanálag vera fyrsta orðið sem heyrðist mælt á Tunglinu. Það er ekki lítið afrek. Hvað með aðrar reikistjörnur verður, á eftir að koma í ljós. -
Mikið um að vera á matvælabraut VMA
- 15.11
Ekki eru mörg ár liðin frá því nemar í starfnámi við matvælabraut Verkmenntaskólans á Akureyri þurftu að halda suður í Menntaskólann í Kópavogi til að ljúka námi sínu. Aukin eftirspurn frá bæði nemendum og atvinnulífinu hefur leitt til þess að VMA jók námsframboð sitt og nemar geta nú lokið námi sínu í heimabyggð. Þjónustusvæðið er einkum Norður- og Austurland. -
16 ára aldurstakmark á samfélagsmiðlum
- 15.11
Er ekki kominn tími til þess að við tökum umræðu um það fyrir alvöru á Íslandi að hækka aldurstakmarkið á samfélagsmiðlum? Hér er um að ræða málefni sem snertir lýðheilsu barna og ungmenna beint og því nauðsynlegt að gefa þessu málefni rými í aðdraganda kosninga. -
Endurreisnartónleikar Hymnodiu og SCS í Akureyrarkirkju n.k. sunnudag Uppfært tónleiknum hefur verið frestað um óákv tíma
- 14.11
Hymnodia, norræna endurreisnarhljómsveitin Scandinavian Cornetts and Sackbuts og Ágúst Ingi Ágústsson, stjórnandi Cantores Islandiae, flytja gullfallega ítalska, spænska og enska endurreisnartónlist á tónleikum í Akureyrarkirkju sunnudaginn 17. nóvember kl. 17.