Leikskólarnir Lundarsel og Pálmholt sameinast

Lundarsel. Mynd/Akureyri.is
Lundarsel. Mynd/Akureyri.is

Leikskólarnir Lundarsel og Pálmholt á Akureyri hafa verið sameinaðir og tóku þannig til starfa eftir sumarfrí. Jafnframt hefur efra húsið sem tilheyrði Pálmholti verið tekið úr notkun enda húsnæðið barn síns tíma. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

Leikskólinn verður starfræktur í tveimur húsum, við Þingvallastræti og Hlíðarlund, sem hafa hingað til hýst Pálmholt og Lundarsel. Fjöldi barna í sameinuðum leikskóla er 146.

Engar breytingar á deildaskipulagi

Til að byrja með, fyrsta skólaárið hið minnsta, verða ekki gerðar breytingar á deildaskipulagi skólans og því verða áfram yngri og eldri leikskólabörn í báðum húsum. Í húsnæðinu við Hlíðarlund eru börn frá 18 mánaða aldri til sex ára og í húsnæðinu við Þingvallastræti eru börn frá 12 mánaða til sex ára.

Skólastjórnendur Lundarsels stýra sameinuðum leikskóla, þær Björg Sigurvinsdóttir skólastjóri og Helga María Þórarinsdóttir aðstoðarskólastjóri.

Drífa Þórarinsdóttir fráfarandi skólastjóri Pálmholts stýrir Klöppum, nýjum leikskóla við Glerárskóla, og flestir starfsmenn sem hafa verið á Pálmholti hefja sömuleiðis störf á Klöppum nú í haust.

Undirbúningur gengið vel

Björg skólastjóri segir að undirbúningur sameiningar hafi gengið vel. „Mikið samstarf hefur verið á milli skólastjórnenda Lundarsels og Pálmholts og hefur verið lögð rík áhersla á gott upplýsingaflæði til foreldra. Ráðningar í sameinað Lundarsel hafa gengið mjög vel en þessa dagana erum við að ganga frá ráðningum í afleysingastöður,“ segir Björg.

Fjöldi starfsmanna í báðum húsum verður um 40 manns. Þar af er 21 með leyfisbréf leikskólakennara og sex með aðra háskólamenntun. Sex karlmenn vinna í leikskólanum og eru fjórir þeirra með leyfisbréf leikskólakennara.

Enn á eftir að ákveða hvað sameinaður leikskóli á að heita. Auglýst var eftir nafni meðal foreldra og nemenda og bárust nokkrar tillögur. Starfsmannahópurinn valdi þrjár þeirra sem á eftir að kjósa um.

Nýjast