Leikskóla á Svalbarðseyri lokað vegna sýnatöku

Álfaborg á Svalbarðseyri.
Álfaborg á Svalbarðseyri.

Ákveðið var að loka leikskólanum Álfaborg á Svalbarðseyri í gær, þriðjudag og verður skólinn lokaður fram á föstudag. Beðið er greiningar á sýnum vegna COVID-19, sem tekin voru af fjölskyldumeðlim starfsmanns leikskólans.

Greint er frá þessu á vef Svalbarðseyrar. "Við viljum hafa varann á og lokum því leikskólanum þessa þrjá daga eða þar til niðurstaða fæst úr sýnatöku. Þessi ákvörðun er tekin í samræmi við viðbragðsáæltun sveitarfélagsins," segir í frétt sveitarfélagsins.

 

 

Nýjast