Leikfélag Akureyrar og Atli Viðar Engilbertsson

Atli Viðar Engilbertsson
Atli Viðar Engilbertsson

Fjöllistamaðurinn Atli Viðar Engilbertsson hefur verið í vinnustofu hjá Leikfélagi Akureyrar, hann er kunnur af verkum sínum í myndlist en færri vita að Atli hefur samið fjölmörg leikverk og lagt stund á tónsmíðar. Leikarar LA og Ingibjörg Huld Haraldsdóttir leikstjóri vinna nú hörðum höndum við að setja saman dagskrá með úrvali úr verkum Atla. Meðal þess sem tekið verður fyrir eru stuttu gamanleikirnir: Bakarinn Í Bakatil" Skyrturnar" Amman & armböndin sjö" Ættarmót / Sáttar sót". Dagskráin fer fram í Rýminu á miðvikudagskvöld. Atli Viðar er listamaður Listar án landamæra 2013. 

Nýjast