Leggja Skarðshlíð 20 fram sem kost á norðurstöð heilsugæslunnar
Akureyrarbær hefur ákveðið að leggja lóðina Skarðshlíð 20 fram sem kost til uppbyggingar á norðurstöð heilsugæslu með þeirri kvöð að einnig verði gert ráð fyrir íbúðum á efri hæðum.Geta áhugasamir lagt fram tillögu að uppbyggingu á lóðinni til samræmis við forsendur sem fram koma í auglýsingu Ríkiskaupa og úthlutunarskilmálum Akureyrarbæjar. Þetta kemur fram á vef bæjarins.
Ákveðið hefur verið að gera úrbætur á aðstöðu Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) á Akureyri með því að finna eða byggja nýtt húsnæði fyrir heilsugæslu á tveimur stöðum í bænum, norðurstöð og suðurstöð.
Skila skal inn tillögum með rafrænum hætti í gegnum útboðsvef Akureyrarbæjar innan auglýsts frests sem er til kl. 13:00 þriðjudaginn 14. september 2021