Kveikt var á jótré Húsavíkur í dag

Mynd/epe
Mynd/epe

Jólaljósin voru tendruð á jólatrénu á Húsavík í morgunárið í dag.

Vegna samkomutakmarkanna var ekki hægt að halda hefðbundinn viðburð í kringum tendrunina. Þess í stað voru ljósin kveikt í tvígang fyrir yngstu íbúa Húsavíkur; annars vegar fyrir annan og þriðja bekk í Borgarhólsskóla upp úr klukkan 9 í morgun og hins vegar fyrir fyrsta bekk Borgarhólsskóla og leikskólabörn á Grænuvöllum. 

Hjálmar Bogi, Rafnar Máni og Arnþór spiluðu og sungu nokkur jólalög og börnin tóku vel undir. Skyrgámur, Stekkjastaur og Giljagaur komu færandi hendi ofan af fjöllum og vöktu mikla lukku.

Rúv mætti á staðinn í og myndaði seinni hópinn og má eiga von á myndum frá tendruninni í fréttatíma kvöldsins.

Nýjast