Kona sem leitað var í nótt fannst heil á húfi
Leit stóð yfir liðna nótt að konu á áttræðisaldri sem farið hafði að heiman frá sér á Akureyri, líklega um miðnætti en ekki skilað sér heim. Í tilkynningu til lögreglu, sem barts laust eftir kl. 02 kom fram að konan væri Alzheimer sjúklingur og því ekki líkleg til að rata heim aftur.
Hófst strax eftirgrennslan eftir konunni að hálfu lögreglu og þá voru björgunarsveitir í Eyjafirði sem og Þingey ræstar út til aðstoðar og leitar og aðgerðastjórn virkjuð. Leitað var með skipulögðum hætti út frá heimili viðkomandi og var það gert með fjölda björgunarsveitarmanna, lögreglumanna, drónum og leitarhundi.
Hafði gengið 3 kílómetra frá heimili sínu
Þó að kalt hafi verið í veðri voru aðstæður til leitar ákjósanlegar og gátu leitarmenn m.a. fylgt líklegum sporum í snjónum frá heimili viðkomandi. Þrátt fyrir að hafa misst af þeim á nokkrum stöðum var það til þess að konan fannst heil á húfi laust fyrir kl. 07:00, þá enn á gangi og búin að ganga rúmlega 3 kílómetra frá heimili sínu.
Var hún flutt á Sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar. Lögregla þakkar í tilkynningu á fésbókarsíðu sinni þar sem þetta kemur fram öllum sem þátt tóku í verkefninu en það hefði sýnt enn og aftur að samtakamátturinn sé til staðar þegar þörf er á.