13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Kjósa um sameiningu í mars
Í desember 2021 samþykktu sveitarstjórnir Langanes-byggðar og Svalbarðshrepps að skipa samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna.
Þorsteinn Ægir Egilsson var kjörinn formaður nefndarinnar og Sigurður Þór Guðmundsson varaformaður.
Nefndin leggur áherslu á samráð við íbúa og fóru þrír samráðsfundir fram í vikunni. Í kjölfar fundanna samþykkti nefndin að vísa áliti sínu til umræðna í sveitarstjórnunum.
Í fréttatilkynningu segir að sveitarfélögin tvö hafi átt í farsælu samstarfi um langa hríð. Að mati samstarfsnefndar getur sameining þeirra skapað tækifæri til skilvirkari stjórnsýslu og þjónustu, auk þess sem tækifæri eru til frekari atvinnuþróunar og nýsköpunar.
Vísbendingar eru um að fjárhagur sameinaðs sveitarfélags verði sterkur og fjárfestingageta meiri en hjá hvoru sveitarfélagi um sig, ekki síst með um 548 mkr. áætluðu sameiningarframlagi úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Samstarfsnefndin leggur til að í stjórnskipulagi sameinaðs sveitarfélags verði nefnd sem fjalli sérstaklega um hagsmuni dreifbýlisins og landbúnaðarmál. Á þann hátt verði komið til móts við áhyggjur íbúa í dreifbýli af því að missa áhrif á ákvarðanatöku.
Samstarfsnefnd tekur undir ábendingar íbúa um að nauðsynlegt sé að halda sérstaklega utan um jarðeignir sveitarfélaganna og nýta tekjur af þeim til að skapa tækifæri til styrkingar mannlífs, byggðar og atvinnutækifæra. Nefndin leggur til að stofnaður verði sérstakur sjóður í þeim tilgangi og hefur unnið tillögu að samþykktum fyrir slíkan sjóð.
Það er álit nefndarinnar að íbúar sveitarfélaganna skuli fá tækifæri til að kjósa um sameiningu sveitarfélaganna þann 26. mars 2022.