Kiwanisklúbbar á Norðurlandi gáfu heilalínuritstæki

Meðfylgjandi er mynd tekin þegar fulltrúar kiwanisklúbba í Óðinssvæði afhenda fulltrúum Rannsóknasto…
Meðfylgjandi er mynd tekin þegar fulltrúar kiwanisklúbba í Óðinssvæði afhenda fulltrúum Rannsóknastofu í lífeðlisfræði, formlega heilalínuritann þann 25/6 á fjölskylduhátíð í Ártúni Grýtubakkahreppi. Svæðisstjóri Óðinssvæðis Helgi Pálsson afhenti gjöfina. Mynd/SAk

Kiwanisklúbbar á Norðurlandi „Óðinssvæði“ færðu Rannsóknastofu í lífeðlisfræði á Sjúkrahúsinu á Akureyri, heilalínuritstæki að gjöf á vordögum 2022. Verðmæti gjafarinnar eru 3.2 milljónir.

Nýja heilalínuritstækið mun nýtast skjólstæðingum lífeðlisfræðideildar, einkum börnum og bæta greiningu ýmissa höfuðáverka, flogaveiki og annarra heila- og taugasjúkdóma til muna. Tækið er mun fullkomnara en það sem fyrir var, það gefur möguleika á myndbandsupptökum auk þess sem sérfræðingar geta nú fylgst með heilaritum með fjarbúnaði í rauntíma sem bætir mjög úrlestur rannsókna.

Kiwanisklúbbar Óðinssvæðis sem standa að þessari gjöf hafa um 150 félaga og eru eftirfarandi:
Freyja - Sauðárkróki
Drangey - Sauðárkróki
Skjöldur - Siglufirði
Kaldbakur - Akureyri
Grímur - Grímsey
Skjálfandi - Húsavík
Herðubreið - Mývatnssveit
Askja - Vopnafirði

„Óeigingjarnt sjálfboðastarf af þessu tagi gerir kleift að rannsaka, greina og meðhöndla sjúkdóma á Norðurlandi á besta hugsanlega hátt. Sjúkrahúsið á Akureyri þakkar kærlega fyrir höfðinglega gjöf,“ segir í tilkynningu.

Nýjast