Kisur haldi sig inni frá og með 2025

Þetta er kötturinn Vinur sem býr á Húsavík en þar hefur lausagana katta verið bönnuð árum saman. Eig…
Þetta er kötturinn Vinur sem býr á Húsavík en þar hefur lausagana katta verið bönnuð árum saman. Eigandi Vinar hefur útbúið afgirt útisvæði sem hann getur sprangað um að vild. Ljósmynd/aðsend

Lausaganga katta verður bönnuð á Akureyri frá 1. janúar 2025. Meirihluti bæjarstjórnar samþykkti tillögu þar að lútandi á fundi í gær. Vefmiðillinn akureyri.net greindi fyrst frá

Eva Hrund Einarsdóttir bæjarfulltrúi D-lista lagði fram tillögu þess efnis að samþykktir um kattahald yrðu endurskoðaðar. Talsverðar umræður fóru fram um málið og kom þá í ljós meirihluti bæjarfulltrúa vildi ganga lengra en tillaga Evu Hrundar, fól í sér.

Eva Hrund lagði fram þá fram nýja tillögu sem samþykkt var af sjö bæjarfulltrúum. Fjórir voru á móti og lögðu fram bókun.

Tillaga Evu Hrundar, sem samþykkt var, hljóðar svo:

  • Bæjarstjórn samþykkir að endurskoða samþykktir um kattahald í Akureyrarkaupstað. Verður þá með nýjum tillögum lausaganga katta ekki heimil en sett svokallað sólarlagsákvæði inn sem er þrjú ár. Lausaganga katta verður þá ekki heimil frá ársbyrjun 2025. Þá verði einnig settur umtalsverður meiri kraftur að í að framfylgja þeim samþykktum með sérstakri áherslu á ábyrgð eigenda, skráningarskyldu og fræðslu.

Hilda Jana Gísladóttir lagði fram bókun fyrir sína hönd, Sóleyjar Bjarkar Stefánsdóttur og Heimis Haraldssonar, en þau ásamt Höllu Björk Reynisdóttur, forseta bæjarstjórnar, greiddu atkvæði gegn tillögu Evu Hrundar.

Bókunin sem Hilda Jana lagði fram er svona:

  • Við hörmum þá niðurstöðu bæjarstjórnar að banna alfarið frjálsa útivist hjá kisum. Bæjarfélagið hefur lítið sem ekkert gert til að framfylgja þeim samþykktum sem nú þegar eru í gildi né látið á það reyna að breyta samþykktum í þá veru að sem flestir geti vel við unað. Hægt hefði verið að stíga það skref að heimila ekki útivistina að næturlagi og yfir varptíma fugla. Mikilvægara hefði verið að leita lausna en að grípa til banns. Fyrst grípa á hins vegar til banns hefði verið eðlilegra að setja sólarlagsákvæði, þannig að þær kisur sem nú þegar eru útikisur fái að vera það út sinn líftíma.

 

Nýjast