20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Kirkjutröppurnar lokaðar fram á haust vegna framkvæmda
Kirkjutröppunum við Akureyrarkirkju hefur nú verið lokað vegna endurnýjunar á þeim og nánasta umhverfi þeirra. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar. Þar segir að áætlað sé að verklok verði í október nk.
,,Löngu tímabært var orðið að ráðast í endurnýjun á tröppunum sem voru farnar að láta mjög á sjá og gátu jafnvel reynst varasamar á veturna. Kirkjutröppurnar verða byggðar upp að nýju og steyptar í sömu mynd og þær hafa verið en um leið verður komið fyrir snjóbræðslulögnum í öllum þrepum og pöllum. Lýsing við og í tröppunum verður endurnýjuð, frárennsliskerfi komið í viðunandi lag og tryggt að merkingar séu með þeim hætti að þær auðveldi sjóndöprum og hreyfihömluðum að fara um þessa vinsælu gönguleið," segir í tilkynningunni og jafnframt tekið fram að unnið sé að merkingum á svæðinu.