13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
KEA afhenti 15 milljónir úr Menningar-og viðurkenningasjóði
KEA afhenti styrki úr Menningar-og viðurkenningasjóði félagsins, miðvikudaginn 1. desember og fór styrkúthlutunin fram í Menningarhúsinu Hofi. Þetta var í 88. skipti sem sjóðurinn veitir styrki. Úthlutað var rúmum 15 milljónum króna til 42 aðila. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Styrkúthlutun tók til þriggja flokka samkvæmt reglugerð sjóðsins en þeir eru Menningar- og samfélagsverkefni, Íþrótta- og æskulýðsfélög og Ungir afreksmenn.
Í flokknum Menningar- og samfélagsverkefni hlutu 15 aðilar styrki, alls 2,8 milljónir króna.
- Aðalheiður S. Eysteinsdóttir
- Akureyrarkirkja
- Fayrouz Nouh
- Flóra menningarhús
- Garðurinn hans Gústa
- Kvenfélagið Baugur
- Lúðrasveit Akureyrar
- Minjasafnið á Akureyri
- NorðanKraftur
- Persónulega safnið
- Safnasafnið
- Samtök um sorg og sorgarviðbrögð Norðurlandi Eystra
- Skíðafélag Dalvíkur
- Útgerðarminjasafnið á Grenivík
- Þekkingarnet Þingeyinga
Í flokki Íþróttastyrkja hlutu 15 aðilar styrki, samtals 10 milljónir króna.
- Íþróttafélagið Eik
- Íþróttafélagið Magni
- Íþróttafélagið Völsungur
- Knattspyrnudeild UMFS Dalvík
- ÞórKA kvennabolti
- Knattspyrnufélag Fjallabyggðar
- KFUM og KFUK Akureyri
- Íþróttafélagið Þór
- Knattspyrnufélag Akureyrar
- Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar UMFS í Dalvíkurbyggð
- Skíðafélag Akureyrar
- Sundfélagið Óðinn
- Ungmennafélag Langnesinga
- Ungmennafélagið Æskan
- Skautafélag Akureyrar
Í flokki ungra afreksmanna hlutu 12 aðilar styrk, samtals 2,4 milljónir króna.
- Anna María Alfreðsdóttir, bogfimi
- Ásdís Guðmundsdóttir, handbolti
- Benedikt Friðbjörnsson, snjóbretti
- Eik Haraldsdóttir, söngur
- Gylfi Rúnar Jónsson, júdó
- Hrefna Ottósdóttir, körfubolti
- Jóna Margrét Arnarsdóttir, blak
- Júlía Rós Viðarsdóttir, listhlaup á skautum
- Katla Björg Dagbjartsdóttir, skíði
- Lárus Ingi Antonsson, golf
- Rakel Sara Elvarsdóttir, handbolti
- Óðinn Andrason, stærðfræði