KA/Þór þurfa að mæta Stjörnunni á ný

Mynd: KA.is
Mynd: KA.is

Áfrýjunardómstóll HSÍ hefur fellt þann dóm að úrslit leiks Stjörnunnar og KA/Þórs í Olísdeild kvenna 13. febrúar sl. verði ómerkt og að leikurinn fari fram að nýju. Þetta kemur fram í frétt á vefnum handbolti.is

Handbolti.is hefur afrit dómsins undir höndum.

Dómurinn sem kveðinn var upp í gær og birtur báðum félögum í gærkvöld. Hann hefur hinsvegar ekki verið birtur á heimasíðu Handknattleikssambands Íslands.

Með þessum dómi er ógiltur dómur Dómstóls HSÍ frá 1. mars um um að KA/Þór hafi unnið leikinn, 27:26, þrátt fyrir að viðurkennt hafi verið að ofskráð hafi verið marki á KA/Þór.

Nýjast