Karl Eskil ráðinn til í að stýra miðlum Samherja

Karl Eskil Pálsson.
Karl Eskil Pálsson.

Karl Eskil Pálsson fjölmiðlamaður hefur verið ráðinn til Samherja og mun hann miðla fréttum á heimasíðu og samfélagsmiðlum félagsins, auk þess sem hann mun sinna innri vef Samherja þar sem upplýsingum og fræðsluefni er komið til starfsfólks. Þá mun hann hafa á sinni könnu ýmis önnur verkefni á sviði upplýsingamála. Þetta kemur fram á vef Samherja.

Þar segir að Karl Eskil sé reyndur fjölmiðlamaður. Hann starfaði í tvo áratugi á fréttastofu Rúv á Akureyri, var ritstjóri héraðsfréttablaðsins Vikudags, sjálfstæður blaðamaður og nú síðast dagskrárgerðarmaður á sjónvarpsstöðinni N4 á Akureyri. Sjávarútvegur hefur verið helsta sérgrein hans í fjölmiðlun, einnig umfjöllun um viðskipta- og mannlíf í landinu, sérstaklega á landsbyggðinni.

 

Nýjast