Kanna fleti á sameiningu í Eyjafirði

Fulltrúar sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps og Eyjafjarðarsveitar.
Fulltrúar sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps og Eyjafjarðarsveitar.

Sveitarstjórnir Eyjafjarðarsveitar og Svalbarðsstrandarhrepps heimsóttu hvor aðra á dögunum til að kynna sér innviði sveitarfélaganna og bera saman bækur. Tilgangur var að skoða sameiginlega hagsmuni, aukið samstarf, sameiningarmál og hvað slíkt myndi þýða fyrir sveitarfélögin.

Sveitarstjórnirnar voru sammála um mikilvægi þess að samtal eigi sér stað hvort sem það leiðir til formlegra viðræðna síðar meir, aukins samstarfs sveitarfélaganna, þátttöku fleiri sveitarfélaga eða óbreytts fyrirkomulags. Á vef Svalbarðsstrandahrepps segir að sveitarfélögin tvö séu þegar í miklu og góðu samstarfi með Hörgársveit og Grýtubakkahreppi um ýmis mál og öll eiga þau mikið og gott samstarf við Akureyrarbæ í mörgum málum.

Engin stefna hefur verið sett um framhaldið eða hvort formlegar viðræður muni eiga sér stað en kostir þess og gallar verða þó ræddir í hvoru sveitarfélagi fyrir sig. Sveitarstjórnirnar voru sammála um mikilvægi þess að hafa íbúa sveitarfélaganna með í þeim vangaveltum, skrefum eða ákvörðunum sem möglega verða teknar í þessari vegferð.

„Erum sannarlega að bjóða upp í dans“

Björg Erlingsdóttir, sveitaststjóri Svalbarðsstrandarhrepps, segir í samtali við Vikublaðið að sameiningarferli sé löng leið. „Við erum sannanlega að bjóða upp í dans. Við gerum ráð fyrir að hitta sveitarstjórnarfólk í Hörgársveit og Grýtubakkahreppi á sömu nótum, förum í heimsóknir, skoðum fjármál, helstu þætti sem stjórna áhuga og áhyggjum íbúa og fleira,“ segir Björg.

Hún segir sveitarfélögin standa öll vel fjárhagslega en með sameiningu aukist þjónustustig og rekstur sveitarfélagsins. En hugnast minni sveitarfélögunum í Eyjafirði frekar að sameinast innbyrðis en að sameinast Akureyri? „Okkur hugnast allt best og erum tilbúin til þess að skoða alla möguleika,“ segir Björg.

Nýjast