Kaktus 10 ára: 2025-Lokaútkall
Kaktus er listhópur sem rekur sitt eigið listarými í Listagilinu á Akureyri. Markmið hópsins er að bjóða upp á fjölbreytta menningarstarfsemi úr ýmsum listgreinum og styðja við grasrót menningar á Akureyri. Frá apríl 2015 hefur Kaktus staðið að yfir 500 listviðburðum. Listamenn víðsvegar að af landinu, sem og erlendis frá, hafa haldið sýningar, tónleika og staðið fyrir fjölbreyttri listsköpun undir merkjum Kaktuss og fjölmargir ungir listamenn stigið þar sín fyrstu spor.
Kaktus heldur upp á 10 ára afmæli sitt í ár og leitar að tillögum fyrir sýningar, tónleika, samkomur, uppákomur og aðra viðburði fyrir 2025. Áhugasamir er beðnir um að senda umsóknir á kaktusdidsomeart@gmail.com.
Eftirfarandi þarf að fylgja umsókn:
- Art proposal: Stuttur texti um fyrirhugaða sýningu eða viðburð.
- CV: Texti eða listi um hvað umsækjandi hefur gert áður.
- Portfolio: Nokkrar myndir af verkum eða fyrri verkum/sýningum/viðburðum.
- Dagsetningar: Óska eftir mánuði og dögum fyrir viðburð.
Kaktus hefur sérstaklega áhuga á þeim sem ekki hafa komið fram áður eða eru reynsluminni í sýningahaldi. Þeir sem ekki hafa þróað með sér CV eða portfolio eru því hvattir til að sækja um, en þurfa engu að síður að kynna sig og hugmyndina með öðrum hætti, t.d. með kynningarbréfi (e. artist statement). Þeir sem eru með hugmyndir af viðburði sem er í mótun og vantar aðstoð eru einnig hvattir til að hafa samband.
Ath: Umsóknarfrestur til og með 17. febrúar