Dagskráin 19. febrúar - 26. febrúar Tbl 7
Listasafnið - Hin líflátna endurreisn Úkraínu
Í dag kl. 17-17.40 heldur úkraínska listakonan Kateryna Ilchenko Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu undir yfirskriftinni The Executed Renaissance of Ukraine. Í fyrirlestrinum, sem fer fram á ensku, mun hún fjalla um úkraínskt listafólk sem var uppi á árunum 1920-1930 og var beitt grimmilegri kúgun af hendi Sovétríkjanna.
Ógnarstjórnin þaggaði niður í listafólkinu með hótunum, ofbeldi og morðum og raddir þeirra voru þurrkaðar út. Saga þessa fólks má ekki gleymast því sagan endurtekur sig. Hvað segja raddir látinna listamanna okkur? Hvað áttu þær eftir að segja okkur? Kateryna Ilchenko lærði stafræna list í Kyiv og fyrir innrás Rússa í Úkraínu vann hún við listkennslu barna, myndskreytingar og hönnun. Hún skrifar einnig bækur og ljóð.
Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Myndlistafélagsins og Gilfélagsins. Aðrir fyrirlesarar vetrarins eru Þórgunnur Þórsdóttir, listakona, Angelika Haak, myndlistarkona, Brynja Baldursdóttir, myndlistarkona, auk fulltrúa Myndlistarfélagsins. 1.mars verður opnuð sýning á verkum hinnar látnu, 18 ára gömlu, Veronika Kozhushko, sem féll í árás Rússa á heimaborg hennar, Kharkiv.
Verioniku dreymdi um að veröldin fengi að heyra hennar hugmyndir í gegnum listina. Hana dreymdi um að bera ljósið. Hún var ljós. Hennar einkunnarorð voru:,,Ég mun skapa fyrir þá sem ekki geta það lengur" og ,,Ég get ekki bjargað borginni minni með ást. En ég mun að minnsta kosti reyna".
Kateryna Ilchenko, sem gengur undir listamannsnafniu Robert Whale-Lover, vinnur nú að sýningu í Deiglunni á verkum vinkonu sinnar Veronika Kozhushko, svo draumur fallins listamanns geti byrjað að raungerast á Íslandi.