Jón Steindór ráðinn til KEA

Jón Steindór Árnason.
Jón Steindór Árnason.

KEA hefur ráðið Jón Steindór Árnason sem fjárfestingastjóra með áherslu á fjárfestingar í óskráðum hlutabréfum. Jón Steindór er 45 ára gamall viðskiptafræðingur með M.Sc. gráðu frá Háskóla Íslands. Hann er með 20 ára reynslu á íslenskum fjármálamarkaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá KEA.

Jón Steindór hefur meðal annars starfað í sérhæfðum fjárfestingum hjá Íslenskum verðbréfum og sem framkvæmdastjóri fjárfestingasjóðsins Tækifæris hf.  Þar áður starfaði hann hjá FME og BYR.  Þá hefur hann setið í fjölda stjórna á undanförnum árum.

Jón Steindór mun hefja störf hjá KEA í janúar n.k.

Nýjast