Jólastjörnurnar fara senn á loft

Mynd/Akureyri.is
Mynd/Akureyri.is

Starfsmenn umhverfismiðstöðvar Akureyrarbæjar byrja að tendra jólaljósin vítt og breitt um bæinn á allra næstu dögum eftir því sem fram kemur á vef bæjarins. Jafnframt er skorað á bæjarbúa að láta ekki sitt eftir liggja heldur tendra jólaljósin við heimili sín og lýsa þannig upp svartasta skammdegið.

"Hugum vel hvert að öðru í kærleika og birtu jólaljósanna. Munum að virða allar sóttvarnareglur og förum varlega," segir á vef bæjarins.

Nýjast