Jólakveðja frá Randers, vinabæ Akureyrar

Mynd: Almar Alfreðsson/akureyri.is
Mynd: Almar Alfreðsson/akureyri.is

Ljósin hafa verið tendruð á jólatrénu á Ráðhústorgi en tréð er gjöf frá Randers, vinabæ Akureyrar í Danmörku.

Vegna samkomutakmarkana þótti  ekki ráðlegt að stefna bæjarbúum saman á Ráðhústorgi eins og hefð er fyrir við þetta tilefni. Hins vegar var tekið upp stutt myndband þar sem sendiherra Danmerkur á Íslandi, Kirsten R. Geelan, flytur bæjarbúum jólakveðju frá vinum okkar í Danmörku og Barnakór Glerárkirkju undir stjórn Margrétar Árnadóttur syngur sálminn Þá nýfæddur Jesú í jötunni lá. segir á heimasíðu Akureyrarbæjar

Myndbandið gerði Dagný Hulda Valbergsdóttir.

 

Nýjast