Jana Salóme vill leiða lista Vinstri grænna
Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, varabæjarfulltrúi á Akureyri, hefur tilkynnt að hún gefi kost á sér til að leiða lista VG á Akureyri fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar sem fara fram 14 maí nk. Bæjarfulltrúi flokksins frá 2014, Sóley Björk Stefánsdóttir, gefur ekki kost á sér í oddvitasætið áfram.
Jana er menntaður efnafræðingur, með gráðu í mannauðsstjórnun og hefur starfað sem hótelstjóri á sumrin, en vinnur nú á veitingastaðnum Berlín. Hún situr í Umhverfis- og mannvirkjaráði Akureyrarbæjar og í stjórn Hafnarsamlags Norðurlands. Auk þess situr hún í stjórn VG á Akureyri, er formaður stjórnar kjördæmisráðs VG í Norðausturkjördæmi og varaformaður Ungra vinstri grænna.
Í tilkynningu til fjölmiðla segist Jana ætla að leggja áherslu á umhverfismál.
„Akureyrarbær hefur allt sem til þarf til að vera leiðandi í umhverfismálum. Nauðsynlegt er að taka afgerandi afstöðu í loftslagsmálum, bæta aðstöðu fyrir aðra samgöngumáta en einkabílinn, fara í innleiðingu á nýju leiðarkerfi strætó og flýta framkvæmdum á samþykktu stígakerfi bæjarins.“
Sömuleiðis vill hún stuðla að betri loftgæðum.
„Loftgæði á Akureyri eiga aldrei að fara yfir heilsuverndarmörk, börn, aldraðir og lungnasjúklingar eiga ekki að þurfa að sleppa útiveru vegna slæmra loftgæða.“
Í málefnum barna telur Jana nauðsynlegt að bjóða upp að gjalfrjálsar skólamáltíðir, leggja áherslu á vegan fæði og bjóða upp á tekjutengd leikskólagjöld.
„Einnig þarf að auka valfrelsi barna um hvers kyns mat þau borða í skólum og leikskólum og leggja þarf meiri áherslu á grænkerafæði. Einnig þarf að huga að framtíðarmönnun leikskóla sveitarfélagsins, svo fátt eitt sé nefnt,“ segir Jana.