Íslenskur djass og dægurlög á Garúnu

Það er óhætt að mæla með heimsókn í Hof á Akureyri á laugardagskvöld þegar þrír ungir og upprennandi Akureyrskir tónlistarmenn koma fram á veitingastaðnum Garún í tilefni Listasumars.

Leikið verður notalegt klukkutíma langt prógramm af gömlum og góðum íslenskum dægurlögum, útsett á frumlegan, mínímalískan máta fyrir rafbassa, trommusett og söng.

Nýjast