Íbúum hefur fjölgað um 335 á einu ári

Akureyri. Mynd: Þorgeir Baldursson
Akureyri. Mynd: Þorgeir Baldursson

Íbúafjöldi Akureyrarbæjar þann 1. ágúst sl. var 19.436, samkvæmt tölum Þjóðskrár Íslands, og hafa íbúar sveitarfélagsins aldrei verið fleiri. Íbúum hefur undanfarna 12 mánuði fjölgað um 335.

Þjóðskrá birtir mánaðarlega upplýsingar um íbúafjölda sveitarfélaga og miðar breytingu við 1. desember. Á þessu tímabili, síðustu átta mánuði, fjölgaði íbúum Akureyrarbæjar um 219 eða 1,1% sem er á pari við hlutfallslega fjölgun landsmanna í heild.

Íbúafjöldi á Norðurlandi eystra í heild hefur aukist um 295 frá 1. desember sl. eða um 1%. Íbúum fækkaði í 24 sveitarfélögum af 69 á umræddu tímabili.

Ef litið er til síðustu 12 mánaða, frá 1. ágúst 2020, hefur hlutfallsleg fjölgun íbúa Akureyrarbæjar numið 1,8% samanborið við 1,4% á landsvísu.

Þegar horft er til alls landsins þá var næst mest fólksfjölgun hlutfallsega í Hörgársveit með 7,3% fjölgun en íbúum í hreppnum fjölgaði um 47. 

Íbúum Norðurþings hefur fækkað lítilega eða um 19 frá desember 2020 og eru í dag 3015 talsins.

Nýjast