20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Hvatningarverðlaun Búnaðarsambands Eyjafjarðar Athyglisverð uppbygging og jákvæð mynd
Bjarni Óskarsson og Hrafnhildur Ingimarsdóttir á Völlum í Svarfaðardal hlutu hvatningarverðlaun Búnaðarsambands Eyjafjarðar fyrir árið 2022, en þau voru afhent nýlega. Verðlaunin fengu þau fyrir athyglisverða uppbyggingu á bújörð þar sem hefðbundinn búskapur hafði verið lagður niður og fyrir að gefa jákvæða mynd af samfélaginu.
Þau ákváðu árið 2004 að söðla um og flytja úr höfuðborginni út á landi, en þá var ætlunin að hægja á, flytja rekstur yfir á synina og njóta lífsins meir en áður hafði verið. Vellir yrðu nýttir sem sumarbússtaður, en sennilega ætlar almættið athafnafólki ekki að vera með fætur á skammeli nema til að skipuleggja næstu skref.
Eitt leiddi af öðru og húsin tóku breytingum, hlaða varð að veislusal, ræktun berjarunna setur nú sterkan svip á ásýnd bæjarins og þar ber að líta stærsta sólberja akur landsins. Gróðurhús eru líklega orðin 7 þar sem er ræktun berja ásamt tilraunastarfsemi um framtíðarþróun. Bleikjur synda í tjörn bakvið bæjarhúsin. Allt þetta ýtti undir að Litla sveitabúðin varð að veruleika. Þar eru að mestu seldar vörur sem hafa orðið til við þeirra ræktun og heimavinnslu matvæla.
Bjarni og Hrafnhildur hafa haldið fegurð Svarfaðardals og samfélaginu þar hátt á lofti. Fjölmiðlar hafa gert starfi þeirra góð skil þannig að eftir hefur verið tekið og m.a. tekinn upp þar hluti af sjónvarpsþáttum Veislan.