Húsvísk handverkshefð á lista UNESCO

Ljósmynd: Vitafélagið/SSNE
Ljósmynd: Vitafélagið/SSNE

Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, samþykkti í desember að skrá norræna súðbyrðinginn, þ.e.a.s. smíði hans og notkun, sem óáþreifanlegan menningararf mannkynsins. Frá þessu er greint á vef SSNE.

Norðurlöndin stóðu saman að tilnefningunni til UNESCO, þar með talið Menningarmiðstöð Þingeyinga og Vitafélagið. Meirihluti bátanna í bátasafninu á Húsavík eru einmitt fulltrúar þessarar tvö þúsund ára gömlu handverskhefðar á Norðurlöndum.

„Fyrir áhugasama þá mælum við með að skoða bókarbækling sem kom út árið 2007 með upplýsingum og myndum um bátakost og strandmenningu, mismunandi útfærslur eftir notkun, straumum og þörfum hvers svæðis: Norce Boat Dictionary, Northern coastal experience. Bókarbæklinginn er meðal annars hægt að nálgast á bókasöfnum og SSNE. Fyrir áhugasama væri jafnframt fróðlegt og skemmtilegt að horfa á heimildarmynd Ásdísar Thoroddsen Súðbyrðingur - saga báts Gjóla Films / Súðbyrðingur | On Northern Waters (gjola.is),“ segir á vef SSNE

Nýjast