Hugmynd að níu hæða skrifstofubyggingu á baklóð við Glerárgötu

Skálabrún hefur kynnt hugmynd að 9 hæða skrifstofubyggingu á baklóð við Glerárgötu 36 á Akureyri.   …
Skálabrún hefur kynnt hugmynd að 9 hæða skrifstofubyggingu á baklóð við Glerárgötu 36 á Akureyri. Mynd úr kynningu Skálabrúnar

Hugmynd að stórhýsi á baklóð við Glerárgötu 36 á Akureyri var kynnt fyrir skipulagsráði Akureyrarbæjar nýverið. Það gerði fulltrúi frá Fjárfestingafélaginu Klöppum sem er í eigu KEA, en annað dótturfélag, Skálabrún sem hefur verkefni og fjárfestingar á þessu sviði á sínu borði myndi sjá um málið.
Næstu skref í málinu að lokinni kynningu er að fá fram afstöðu skipulagsráðs.

Pétur Ingi Haraldsson skipulagsfulltrúi segir að ráðið hafi enn ekki tekið afstöðu til hugmyndarinnar.  Fram kemur í kynningu félagsins að skortur sé á frambærilegu skrifstofuhúsnæði með góðu aðgengi að nægum bílastæðum utan miðbæjarins. Mikil ásókn fyrirtækja og stofnana sé í húsið við Glerárgötu 36, m.a. frá fyrirtækjum sem vilja flytja sig til innabæjar, stækka við sig eða koma sér fyrir á betri stað. Vill Skálabrún skoða betri nýtingu á lóðinni með því að
byggja á henni. Stórt bílastæði er við austurenda lóðarinnar.

Hver hæð um 250 til 350 fm.  

Hugmyndin gengur út á að byggja níu hæða skrifstofubyggingu þar sem hver hæð gæti verð á bilinu 250 til 350 fermetrar að stærð.
Byggingin yrði reist á súlum sem gerir að verkum að færri bílastæði tapast. Einnig yrði gerður bílastæðakjallari undir núverandi bílastæði og bílastæði yrðu einnig byggð ofan í súlunum. Hvað varðar útlit er vísað til þess að það yrði sambærilegt og Höfðatorg í Reykjavík og Deloitte byggingin við Smáratorg í Kópavogi.

Svarti kassinn sýnir  hvar  hús gæti risið


Athugasemdir

Nýjast