HSN tilkynnir bólusetningarátak

HSN tilkynnti í dag um bólusetningarátak í slökkvistöðinni á Akureyri á næstu dögum. Bólusett verður með Moderna og Pfizer bóluefnunum. 

Dagsetningar næstu bólusetninga eru þessar:

08. des kl: 09:00-16:00 – mRNA Moderna

09. des kl: 09:00-16:00 – mRNA Pfizer

16. des kl: 13:00-15:00

06. jan kl: 13:00-16:00

Til þess að komast hjá umferðartöfum eru einstaklingar beðnir um að  huga að öðrum ferðamáta ef kostur er, sameinast í bíla sem og að virða dagsetningar boðanna.

Öllum 16 ára og eldri býðst örvunarskammtur þegar að lágmarki eru  5-6 mánuðir liðnir frá grunnbólusetningu.

Bólusettir einstaklingar 70 ára og eldri geta fengið örvunarskammt þegar 3 mánuðir hafa liðið frá grunnbólusetningu. 

Bólusett verður með mRNA Pfizer og mRNA Moderna, óháð því bóluefni sem notað var við grunnbólusetningu.

Ekki er mælst til þess að karlmenn yngri en 40 ára og konur yngri en 18 ára fái Moderna og líða þurfa 14 dagar á milli inflúensubólusetningar og bólusetningar gegn COVID-19.

Nýjast