H&M Home hefur opnað nýja verslun í Glerártorgi

Í dag opnaði H&M Home nýja verslun í Glerártorgi á Akureyri sem jafnframt er fyrsta slíka verslunin utan höfuðborgarsvæðisins.

Í tilkynningu kemur fram að vöruúrval verslunarinnar verði eins og þekkist í H&M Home verslunum víðsvegar um heiminn og að hún verði öll hin glæsilegasta.

Verslunin opnaði klukkan 10:00 í morgun „og bjóðum við á Glerártorgi  verslun H&M Home velkomna og teljum við hana verða frábæra viðbót við þann fjölda verslana sem fyrir eru í húsinu,“ segir í tilkynningu frá Glerártorgi.

 

Nýjast