Hermína Hreiðarsdóttir er nýr formaður Starfsmannafélags Húsavíkur
Ný stjórn STH, frá vinstri: Sylvía Ægisdóttir, Berglind Erlingsdóttir, Hermína Hreiðarsdóttir formaður, Bergljót Friðbjarnardóttir og Fanney Hreinsdóttir. Mynd/Framsýn
Aðalfundur Starfsmannafélags Húsavíkur fór fram síðasta mánudag, 6. september. Fundurinn var haldinn í fundarsal stéttarfélaganna að Garðarsbraut 26.
Hermína Hreiðarsdóttir var kjörin formaður félagsins en aðrir í stjórn eru; Bergljót Friðbjarnardóttir, Fanney Hreinsdóttir, Berglind Erlingsdóttir og Sylvía Ægisdóttir.
Fullgildir félagsmenn í Stafsmannafélagi Húsavíkur þann 31. desember 2020 voru 120, það er greiðandi félagar. Nánar er frá þessu greint á vef Framsýnar