„Hefur gríðarlega þýðingu fyrir lítið sveitarfélag“

Lokið hefur verið við að grafa lagnaskurð í gegnum Vaðlareit og áætlað að lagnir verði komnar í skur…
Lokið hefur verið við að grafa lagnaskurð í gegnum Vaðlareit og áætlað að lagnir verði komnar í skurðinn nú um miðjan janúar. Stefnt að því að malbika stíginn á komandi hausti.

Skrifað hefur verið undir samkomulag við Vegagerðina vegna uppbyggingar göngu- og hjólastígs frá Vaðlaheiðargöngum og að Skógarböðum. Vegagerðin greiðir 70% kostnaðar sveitarfélagsins við stígagerðina en áætlaður kostnaður við hluta Svalbarðsstrandarhrepps er um 200 milljónir króna.

„Þessi styrkur frá Vegagerðinni hefur gríðarlega þýðingu fyrir lítið sveitarfélag í svo stóru og metnaðarfullu verkefni og mun hann tryggja að stígurinn verði fullkláraður með áningastöðum og lýsingu sem tryggir öryggi þeirra sem um stíginn fara,” segir Þórunn Sif Harðardóttir verkefnastjóri hjá Svalbarðsstrandahreppi.

Undirbúningur að lagningu göngu- og hjólastígs um sveitarfélagið hefur verið í undirbúningi undanfarin ár en skriður komst á þegar landeigendur Ytri Varðgjár ákváðu að byggja upp Skógarböð, baðstað í landi Ytri Varðgjár sem nýtir heita vatnið sem rennur óbeislað í Eyjafjörðinn.

Þórunn segir verkefnið metnaðarfullt og með lagningu stígsins verði umferðaröryggi hjólandi og gangandi vegfarenda stórlega aukið á hættulegri leið. Áningastaðir verða á leiðinni með bekkjum,upplýsingaskiltum og aðstöðu fyrir notendur til að stoppa og njóta.

Lagnir í skurðinn um miðjan janúar

Norðurorka sér um lagningu á leiðslum og flutningi vatns frá Vaðlaheiðargöngum og að baðstaðnum. Jafnframt verða lagðar lagnir sem munu flytja kalt vatn frá Vaðlaheiðargöngum til Akureyrar. Þórunn segir að lokið hafi verið við að grafa lagnaskurð í gegnum Vaðlareitinn fyrir vatnslagnir og lokið verði við að sjóða saman lagnir í skurðinn nú um miðjan janúar. Gert er ráð fyrir að stígurinn verði malbikaður haustið 2022.

/MÞÞ

 

Nýjast