13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Háskóladagurinn haldinn á Akureyri
Allir háskólar landsins kynna námsframboð sitt á einum vettvangi
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra mun opna Háskóladaginn sem haldinn verður laugardaginn 19. mars kl. 12-15 í Háskólanum á Akureyri (HA). Þá gefst áhugasömum tækifæri til að kynna sér allt háskólanám sem er í boði á landinu á einum vettvangi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HA.
Þar kemur fram að starfsfólk og nemendur allra háskóla landsins verða aðgengilegir í spjall við gesti um hvaðeina sem viðkemur námsvali og háskólalífinu. Mikið verði um dýrðir t.a.m. vísinda- og listasmiðjur fyrir gesti og gangandi. Sprengju-Kata útbýr dularfullar og litríkar efnablöndur og boðið verður upp á forritun Lego-vélmennis á þrautaborði. Þá verður hægt að þreyta þrekpróf, tæta sundur tölvur og setja saman aftur og prófa sig við allskyns námsleiðir.
„Við erum rosalega ánægð með að geta haldið daginn á Akureyri. Fyrir tveimur árum þurftum við að aflýsa deginum með skömmum fyrirvara og í ár skipulögðum við daginn stafrænan þar sem enn var mikil óvissa í stefnu faraldursins. Það er því mikið gleðiefni að geta haldið daginn í Háskólanum á Akureyri með þátttöku allra íslenskra háskóla. Þetta er einstakt tækifæri fyrir áhugasama á svæðinu að kynna sér háskólanám,“ segir Sigrún Einarsdóttir, verkefnastjóri Háskóladagsins.