Hárinu í Hofi frestað

Tónleikasýning á söngleiknum Hárinu, sem átti að vera í Hofi á Akureyri laugardaginn 21. ágúst, hefur verið frestað vegna sóttvarnaraðgerða. Ný dagsetning hefur ekki verið ákveðin en tilkynnt verður um hana um leið og ákvörðun liggur fyrir. Þetta kemur fram í tilkynningu. 
 
Allir miðar gilda áfram á nýrri dagsetningu sýningarinnar. Kjósi miðaeigendur að fá miðana sína endurgreidda er þeim bent á að hafa samband við miðasölu MAK eftir 16. ágúst.
 
 

Nýjast