Haraldur Ingi leiðir lista Sósíalistaflokks Íslands í NA

Haraldur Ingi Haraldsson, verkefnastjóri Listasafnsins á Akureyri, leiðir lista Sósíalistaflokksins í Norðausturkjördæmi. Margrét Pétursdóttir er í öðru sæti og Guðrún Þórsdóttir í þriðja sæti. 
Sósíalistar
Í tilkynningu frá Sósíalistaflokknum segir að listanum hafi verið stillt upp af slembivöldum hópi meðal félaga flokksins sem unnið hefur hörðum höndum að því að endurspegla sem skýrast vilja grasrótar flokksins. 
 
„Það er kominn tími á róttæka vinstristefnu sem hefur skýra framtíðarsýn og hafnar stöðugum málamiðlunum til hægri. Málamiðlanirnar hafa engu skilað nema afturför, síauknum ójöfnuði og auðsöfnun lítils hluta þjóðarinnar.
 
Skattahækkanir á bótaþega og almennt launafólk, sligandi húsnæðis- og leigumarkaður og níðþungur fjármagnskostnaður og fjármálakerfi leggja þungar byrðar á þjóðina en soga hins vegar gríðarlegan arð til fjármagnseigenda og stórfyrirtækja,“ segir Haraldur Ingi Haraldsson m.a í tilkynningunni. 

 

Listi Sósíalistaflokks Íslands í Norðausturkjördæmi:

  1. Haraldur Ingi Haraldsson, verkefnastjóri
  2. Margrét Pétursdóttir, verkakona
  3. Guðrún Þórsdóttir, menningarstjóri og ráðgjafi
  4. Þorsteinn Bergsson, dýraeftirlitsmaður og fyrrverandi bóndi
  5. Unnur María Máney Bergsveinsdóttir, sirkuslistakona og sagnfræðingur
  6. Auður Traustadóttir, sjúkraliði
  7. Rúnar Freyr Júlíusson, námsmaður
  8. Karolina Sigurðardóttir, verkakona
  9. Bergrún Andradóttir, námsmaður
  10. Brynja Siguróladóttir, öryrki
  11. Stefán L. Rögnvaldsson, bóndi og raunsæisskáld
  12. Kolbeinn Agnarsson, sjómaður
  13. Halldóra Hafdísardóttir, myndlistarmaður
  14. Arinbjörn Árnason, fv. bóndi og bifreiðarstjóri
  15. Ari Sigurjónsson, sjómaður
  16. Árni Daníel Júlíusson, sagnfræðingur
  17. Michal Polacek, lögfræðingur
  18. Katrín María Ipaz, þjónn
  19. Skúli Skúlason, leiðbeinandi
  20. Jóhann Axelsson, prófesssor emeritus

Nýjast