13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Hagkvæmur kostur til að losna við orkufreka rafhitun
mth@vikubladid.is
Forsvarsmenn Hörgársveitar höfðu frumkvæði að því að fá ráðgjafa til að skoða varmadæluvæðingu í sveitarfélaginu. Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri segir að varmadæluvæðing sé meðal annars til komin vegna þess að ekki sýndist hagkvæmt að leggja hitaveitu á öll svæði sveitarfélagsins. Alls eru 19 íbúar að skoða þann kost að setja upp varmadælu í híbýlum sínum, en sveitarfélagið veitir styrki til verksins.
„Varmadælur eru nú orðnar mjög hagstæður kostur í rekstri húshitunar, þannig að um hagkvæman kost ætti að vera að ræða til framtíðar til að losna við kostnaðarsama rafhitun, enda er gert ráð fyrir í nýjum reglum að niðurgreiðslur haldi áfram“ segir Snorri.
Í framhaldi af heimsókn ráðgjafa í sveitarfélagið sem skoðaði kosti varmadæluvæðingar þar var ákveðið að Hörgársveit myndi veita fjárstyrk til þeirra fasteignaeigenda í sveitarfélaginu sem taka inn slíka dælu og draga þar með úr notkun raforku til upphitunar íbúðarhúsnæðis. Snorri segir að miðað sé við að föst búseta og lögheimilisskráning sé í íbúðarhúsnæðinu og að það sé á svæði þar sem dreifikerfi hitaveitu nær ekki til. Á nokkrum svæðum innan sveitarfélagsins háttar svo til að því verði ekki við komið að nýta hitaveitu ýmist tæknilega eða með hagkvæmum fjárhagslegum hætti.
Kostnaður fasteignaeigenda um milljón
Talið er að kostnaður við kaup og uppsetningu varmadæla sé að meðaltali um 2,3 milljónir króna á hverjum stað. Ráðgjafaþjónusta kostar 300 þúsund krónur að auki þannig að upphæðin nemur um 2,6 milljón króna fyrir hvern þann sem tekur inn varmadælu. Orkustofnun hefur gefið út að hún styrki verkefnið um 1,0 milljón, Hörgársveit ætlar að styrkja verkefnið um 600 þúsund krónur, þ.e. sveitarfélagið mun greiða ráðgjafaþjónustuna og veita 300 þúsund krónur að auki í styrk vegna kaupa á varmadælunni. Má því áætla að kostnaður fasteignaeigenda verði nálægt ein milljón króna.
Snorri segir að þessi upphæð sé svipuð og viðkomandi fasteignaeigandi þyrfti að greiða fyrir heimtaugagjöld vegna hitaveitu, ekki síst þar sem fjarlægðir yrðu miklar frá stofnæð hitaveitunnar.