Hafdís og Birnir Vagn íþróttafólk UFA

Birnir Vagn Finnsson og Hafdís Sigurðardóttir.
Birnir Vagn Finnsson og Hafdís Sigurðardóttir.

Hafdís Sigurðardóttir og Birnir Vagn Finnsson voru á dögunum kjörin íþróttafólk Ungmennafélags Akureyrar (UFA) fyrir árið 2020. Í umsögn UFA segir að Hafdís Sigurðardóttir sé í fararbroddi íslenskra langstökkvara og varð Íslandsmeistari kvenna bæði innan- og utanhúss á síðasta ári. Hún sigraði jafnframt í langstökki á Reykjavík International Games. Birnir Vagn vann alls sjö Íslandsmeistaratitla í sínum aldursflokki á síðasta ári; þrjá innanhúss og fjóra útanhúss. Þar reis hvað hæst Íslandsmeistaratitill hans í tugþraut.

Hann vann einnig til silfurverðlauna í karlaflokki í langstökki. Hann setti auk þess Íslandsmet/aldursflokkamet í 60 metra hlaupi og komst í úrvalshóp FRÍ í tíu greinum

auk þess sem hann náði lágmarki inn á Norðurlandamót unglinga í tugþraut. Þá fengu Sigurlaug Anna Sveinsdóttir og Róbert Mackay hvatningarverðlaun þjálfara auk  Önnu Sofiu Rappich sem fékk hvatningarverðlaun í flokki öldunga.

Nýjast